Er farin að fylgjast með íbúðum. Sit hérna heima fyrir framan
tölvuna dag eftir dag, tjúllast úr spenning yfir
einhverjum draumaíbúðum, dett síðan niður í raunveruleikan, og svo
byrjar cirkillinn aftur....
Ég var reyndar dugleg ígær, fórum og skoðuðum eina. Ég var svo
ástfangin og spennt, hefði getað keypt hana á staðnum. Var með plan
á breytingum á allri íbúðinni, þetta var sko draumurinn. Held að ég
hafi bara heilan helling af manískri orku hans pabba míns í mér
En ídag fórum við aftur og auðvitað kíkti
raunsæin í heimsókn og þetta dofnaði heilan helling.
Fór í soldinn bömmer. Enda verður maður alltaf pirraður
þegar maður fer að hugsa um peninga sem maður á
ekki. Stoppuðum í bónus og versluðum örugglega 7
snakkpoka (lager,,, er ekki fuglaflensan að koma?) og 6 pepsi
max (var á tilboði, aðeins 58 kr fyrir 2 lítra). ...
hehe, núna sit ég uppi með það að vera í bömmer OG óglatt.
Smá gleðivon; fann eina nýja íbúð. Verst að það skuli
vera laugardagur, nú þarf ég að vera manískt spennt fram á
mánudag. :Þ